Verslun, veitingastaðir og afþreying

Efstadal 2 er lykilstaður í nágrenni Reykjaskógar og vinsæll viðkomustaður fyrir þá sem vilja njóta góðrar matargerðar. Þar er veitingastaður með hráefni úr héraði og ísgerð sem framleiðir úr ferskri kúamjólk. Gestir geta einnig kynnt sér dýrin á búinu, skellt sér í hestaleiguna (sumar opnun) og notið útsýnis yfir sveitina.

Verslanir: Matvöruverslanir á Laugarvatni, í Reykholti og á Flúðum bjóða allt það nauðsynlegasta fyrir sumarhúsadvölina. Í Laugardalshólum má kaupa dýrindis kjöt beint frá býli og svo mætti lengi telja.

Veitingastaðir: Á Laugarvatni er fjöldi veitingastaða, Reykholt státar af hlýlegu kaffihúsi og veitingastöðum. Á Flúðum er fjölbreytt úrval veitingastaða, verslanir með sérvörur og vinsæl markaðsstemning yfir sumartímann. Laugarás er þekktur fyrir gróðrarstöðvar og framleiðslu á ferskum matvælum. Gullfoss og Geysir eru ekki aðeins náttúruundur heldur einnig vinsælir staðir fyrir góðan mat og drykki, þar sem veitingahúsin leggja áherslu á íslenskar kræsingar.

Afþreying: Reykjaskógur er á Gullna hringnum og er því af nógu að taka þegar kemur að afþreyingu. Náttúruunnendur njóta göngu- og hjólaleiða í nærumhverfinu, á Þingvöllum og við Gullfoss og Geysi. Laugarvatn Fontana býður upp á náttúrulaugar og heilsulind, sundlaugar má finna á Laugarvatni og í Reykholti, Friðheimar halda hestasýningar, dýragarðurinn Slakki er ákaflega skemmtilegur heim að sækja í Laugarási og nóg er af ám og vötnum fyrir veiðiáhugafólk svo fátt eitt sé nefnt. Leiksvæði með sparkvelli, frisbí,- og minigolfvelli, körfuboltakörfu og leiksvæði fyrir börn innan svæðis og frábær gönguleið liggur upp með Brúará að Brúarfossi. Þaðan er svo hægt að ganga Kóngsveginn að Efstadal 2 og fá sér ís.

Golfvellir eru víða í nágreninnu og má þar nefna: Úthlíð, Miðdal, Geysir og Flúðir. Svo er stutt í Grímsnesið en þar er nokkra fanta fína velli að finna.

Nokkrar vegalengdir frá Reykjaskógi:
Efstidalur: 4 km
Úthlíð: 5,5 km
Reykholt: 12 km
Geysir: 14,5 km
Laugarvatn: 15,5 km
Laugarás: 19 km
Flúðir: 22,5 km
Gullfoss: 24 km
Selfoss: 50 km
Reykjavík: 85 km (um Þingvelli)