
Lausar lóðir eru merktar inn á myndina hér að ofan.
Kauplóð:
750kr. pr fermeter
Gatnagerðargjald: 400.000
Heitt vatn, tengigjald: 550.000
Kalt vatn, tengigjald: 450.000
Vatni og vegi er skilað við lóðamörk.
Árleg gjöld eftir það eru heitt vatn, kalt vatn og veggjald (2024 – 108.026 kr. + hitaveita).
Árleg gjöld eru vísitölutengd.
Leigulóð:
Stofngjald: 1.000.000
Heitt vatn, tengigjald: 550.000
Kalt vatn, tengigjald: 450.000
Vatni og vegi er skilað við lóðamörk.
Árleg gjöld eftir það eru lóðaleiga, kalt vatn, veggjald og hitaveita (2024 – 151.571 + hitaveita).
Árleg gjöld eru vísitölutengd.
*Leigulóð má kaupa síðar á leigutímabilinu.
Hitaveita: (2 mín/lítr): 107.424.
Árleg notkun umfram 2 mín/lítr. greiðist samkvæmt mæli.
Við heitt vatn bætist mælagjald, 11% vsk. og 2% orkuskattur.
Tengigjöld við heita- og kaldavatnsveitur eru innheimt þegar óskað er eftir tengingu en ekki síðar en þremur árum eftir undirskrift kaup- eða leigusamnings.
Snjómokstur
Stofnleiðir og botnlangar eru ruddir á föstudögum og sunnudögum gerist þess þörf og greiðist af sumarbústaðafélaginu í Reykjaskógi. Umbeðinn snjómokstur utan þess greiðist af þeim sem um biður.
Jarðvegsvinna
Við erum með malarnámur, tæki og tól til jarðvegsvinnu og getum að öllu jöfnu tekið að okkur vegagerð innan lóðar, lagnagröft og grunn/púða undir hús. Á okkar svæði fyrirfinnst ekkert hraun og meðal dýpt niður á fast er um 1,7m. Næsta malarnáma er innan okkar landareignar og kostnaður við grunn og púða er mun lægri hér en víða annarstaðar.
Öll ofangreind verð eru án vsk.
Verð eru birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur.
